Hulda HreinDal Sigurðardóttir

Hulda HreinDal Sigurðardóttir er listamaður febrúarmánaðar á Bókasafni Garðabæjar og verður sýning hennar, „Allt á Huldu“ opin á afgreiðslutíma bóksafnsins út mánuðinn

„Málaðu það sem þú sérð í undirlaginu í dýptinni í pensilförunum í grunninum. Láttu skuggann falla á skuggann þá gætir þú séð eitthvað óvænt skemmtilegt eða skemmtilega skuggalegt. Leyfðu hugmyndarfluginu að ráða“ HHSIG ’21

Hulda HreinDal flutti til Skotlands 1974, 14 ára gömul. Hún fór á myndlistarbraut í Greenfaulds High School, Cumbernauld, þá hélt hún sína fyrstu einkasýninguna í bókasafni bæjarins tveimur árum síðar. Eftir útskrift hóf hún nám í Duncan of Jordanstone College of Art and Design í Dundee. Hulda lauk BA námi í Textile design árið 1981 og flutti sama ár aftur heim til Íslands. Ári síðar var hún með yfirlitssýningu á Kjarvalsstöðum og tók þátt í samsýningu í Listmunahúsinu Lækjargötu sem bar nafnið „Brúður Tröll og Trúður“. Frá 2008 hefur hún verið með eigin vinnustofu, fyrst í Dvergshúsinu í Hafnarfirði en er núna í Lyngási í Garðabæ. Hulda hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið einkasýningar bæði á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig verið með gjörninga, farið í vinnustofu ferðir og sótt fjölbreytt list námskeið. Sýningin er sölusýning og allir velkomnir.

Það er hægt að nálgast greinar um myndlist og viðburðakynningar sjá hér

code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Þversagnir Heiðrún Kristjánsdóttir

      Þversagnir Heiðrún Kristjánsdóttir

      HJARTA REYKJAVÍKUR: ÞVERSAGNIR – HEIÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR   Sýning á verkum Heiðrúnar Kristjánsdóttur op...

      Af hverju er Ísland útópía? Af viðhorfum til Íslands

      Af hverju er Ísland útópía? Af viðhorfum til Íslands

      Sumarliði R. Ísleifsson, lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands, heldur fyrirlesturinn “Af hverju er Ísland útópía? Af v...

      Þula – Kasbomm

      Þula – Kasbomm

      Auður Ómarsdóttir - Kasbomm 16. september - 15. október 2023 Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á einkasýningu Auða...

      Daði Guðbjörnsson listamálari

      Daði Guðbjörnsson listamálari

      Daði Guðbjörnsson (f. 12. maí 1954) Menntun: Myndlistaskólinn í Reykjavík 1969-1976, Myndlista- og handiðaskóli Íslands...