Uppruni, saga og hönnun íslensku lopapeysunnar í máli og myndum
Hádegisfyrirlestur Þjóðminjasafns Íslands
Þriðjudaginn 30. janúar kl. 12 flytur Ásdís Jóelsdóttir, lektor við Háskóla Íslands erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Ásdís er höfundur bókarinnar: Uppruni, saga og hönnun íslensku lopapeysunnar í máli og myndum, en hún hefur einnig gefið út bækur um sögu hönnunar og íslenska fatasögu.
Innihald bókarinnar byggir á víðtækri rannsókn á rituðum heimildum og ljósmyndum auk þess sem tekin voru viðtöl við fjölda aðila sem á einhvern hátt höfðu komið að gerð og mótun íslensku lopapeysunnar. Niðurstöður sýna að íslenska lopapeysan er séríslensk frumhönnun sem mótast hefur í samvinnu margra aðila og saga hennar og þróun er samofin samfélags-, iðnaðar-, útflutnings-, hönnunar– og handverkssögu þjóðarinnar.
Uppruna lopapeysunnar má helst rekja til gróf- og fljótprjónaðra lopapeysa á bændur og sjómenn og vinsælla útvistarpeysa á bæði kynin með einkennandi útprjónuðum hringlaga munsturbekkjum. Á sama tíma var hún orðin að minja- og lúxusvöru og síðar á sjötta og sjöunda áratugnum að eftirsóttri útflutningsvöru. Hversu góð söluvara lopapeysan hefur orðið má þakka því hve einföld hún er í framleiðslu og fljótunnin. Þannig hefur þjálfun og reynsla íslenskra prjónakvenna ásamt ánægju þeirra af því að prjóna lagt grunninn að hönnun og tilvist peysunnar. Íslenska lopapeysan hefur einnig verið nefnd í samhengi við það sem ber að virða, vernda og viðhalda og því var orðið tímabært að skrá sögu hennar og uppruna.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.