Verkís rekur uppruna sinn til ársins 1932 og er því elsta verkfræðistofa landsins. Hjá Verkís starfa yfir 320 starfsmenn að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís leggur áherslu á að veita vandaða og faglega þjónustu sem er samkeppnisfær við það sem best þekkist í heiminum.
Verkís býr yfir sérfræðiþekkingu sem spannar allar þarfir framkvæmdaaðila frá fyrstu hugmynd til loka fjárfestingarverkefnis.
Að auki býður Verkís rekstraraðilum þjónustu við margháttuð rekstrar- og viðhaldsverkefni. Meðal þjónustuframboðs er:
- Undirbúningur framkvæmda og áætlanagerð
- Hönnun mannvirkja, svo sem orkuvera, samgöngumannvirkja, íbúðar- atvinnu- og þjónustuhúsnæðis
- Hönnun allra sérkerfa sem þarf í mannvirki
- Verkefnastjórnun, bæði við hönnun og á framkvæmdastað
- Framkvæmdaeftirlit
- Öryggis-, umhverfis- og heilbrigðisráðgjöf.