Þórunn Bára Björnsdóttir

Þórunn Bára opnar sýningu sína, Tilveru, í Gallerí Fold við Rauðarárstíg laugadaginn 31. október 2020. Rauður þráður í verkum Þórunnar Báru er náttúruskynjun. Hún trúir því að skynreynsla sé vannýtt leið að gagnrýnni hugsun og ábyrgð fólks á umhverfi og eigin lífi, leið sem geti dregið úr firringu og verið hvati til góðra verka.


Þórunn Bára lauk prófi í málun og teikningu frá Listaháskólanum í Edinborg og mastersprófi í listum frá Wesleyan-háskóla í Bandaríkunum.Umsýninguna segir Þórunn Bára:
„Tilvera er yfirskrift sýningar minnar í Galleríi Fold. Á sýningunni eru ný akrýlverk, máluð á striga, þar sem vitnað er um gróskumikla náttúru; plöntur af ýmsum gerðum sem hafa náð bólfestu í hrjóstrugum eldfallajarðvegi í skjóli vistkerfis án íhlutunar mannsins.
Ég sæki hvatningu í smiðju náttúruvísinda um framgang lífs í Surtsey. Málverkin bera vitni um styrk, viðkvæmni og fegurð náttúrunnar. Náttúran er undirstaða lífs á jörðu og tenging við hana gefur færi á að upplifa mannbætandi tilfinningar og fá aukinn skilning á eigin lífi.
Með þessum verkum vek ég athygli á náttúrunni og leyfi henni að snerta hjörtun þannig að okkur auðnist að taka upplýsta afstöðu varðandi loftslagsbreytingar sem hafa stigvaxandi áhrif á allt líf.
Vistkerfið á í vanda. Jörðin er eina heimilið okkar. Við berum sameiginlega ábyrgð á að stemma stigu við margvíslegum orsökum hnattrænnar hlýnunar og að bregðast við, jafnt í orði sem á borði. Þessi sýning er mitt framlag.“


Vegna samkomubanns mun opnunin standa frá kl. 14 – 16 en aðeins mega 20 vera í Galleríinu í einu. Boðið verður upp á léttar veitingar á þeim tíma. Streymt verður frá opnuninni á Facebooksíðu Gallerís Foldar og hefst útsendingin kl 14:00 með frumsýningu á myndbandi um listamanninn.
Sýningin stendur til 14. nóvember n.k. og er opin á opnunartíma gallerísins.