BERG Contemporary býður fólk velkomið á opnun einkasýningar Ryoji Ikeda, data-verse, í BERG Contemporary föstudaginn 6. mars 2026 kl. 17:00-19:00
Ryoji Ikeda (f. 1966 í Gifu, Japan) er leiðandi innan sjónlista og tónsmíða á heimsvísu, en hann einbeitir sér jafnan að frumeiginleikum hljóðs og myndar, og nýtir sér óspart stærðfræði til að skapa nákvæma fagurfræði sína. Hann útfærir hljóð, mynd og efniskennd á sannfærandi hátt í verkum sínum sem eru innblásin af afrakstri vísindarannsókna, svo úr verður heildræn upplifun. Hann er þekktur fyrir lifandi tónlistarflutning sinn, tónsmíðar og áhrifamiklar innsetningar, auk þess sem hann hefur gefið út bækur og hljóðútgáfur.
Frá árinu 2008 hefur hann sett upp einkasýningar í mörgum af stærstu söfnum í heimi, má þar nefna Centre Pompidou í París, Park Avenue Armory í New York, Museum of Contemporary Art í Tokyo, ZKM Centre for Art and Media Karlsruhe, Eye Filmmuseum í Amsterdam, Taipei Fine Arts Museum, 180 The Strand í London, Hirosaki Museum of Contemporary Art, Amos Rex í Helsinki, High Museum of Art í Atlanta, National Asian Cultural Center í Gwangju, auk annarra. Hann býr og starfar í París, Frakklandi og Kyoto í Japan.
Listamaðurinn verður viðstaddur opnunina.



