Iceguys á Menningarnótt í höfuðborginni

Horft til baka IV

Þegar maður lítur til baka á þær sjö hundruð ljósmyndir sem birtar voru í júlí og ágúst, hjá okkur á Icelandic Times / Land & Sögu, fer maður á flug. Hugsar, hvað það er hlýtt og bjart. Gott að vera hér heima. Þá er erfitt að velja bestu myndirnar. En hér eru níu myndir sem mér þykir vænt um, sem ná sumrinu. Hér eru hversdagsleg augnablik, persónuleg augnablik sem voru, og fóru auðvitað. Maður er fljótur að gleyma, en myndavélin skrásetti augnablikin. Ljósmyndirnar hafa lengri líftíma, lengri en maður órar.

Einn eitt, eldgosið byrjaði við Grindavík, um miðjan júlí, sætt og lítið
Hallsteinsgarður í Grafarvogshverfinu
Kári Pálsson að hyggja að laxi í Hvítá
Sumardagur í Vaglaskógi í Fnjóskadal, rétt austan við Akureyri
Regnbogi í Víðidal, norður í Vestur-Húnavatnssýslu
GayPride í Reykjavík, þar sem 80 þúsund manns eiga góða stund saman… alltaf í góðu veðri
Sundin blá, rétt um miðnætti
Iceguys á Menningarnótt í höfuðborginni

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Ísland : 02/01/2026 – A7CR, A7R IV, RX1R II – FE 1.4/24mm, FE 1.2/50mm, FE 2.8/100mm, 2.0/35mm Z