Bókatíðindi 2015 sjá meira hér
Kæru bókaunnendur,
Enn á ný birtast Bókatíðindi ársins, að venju sneisafull af áhugaverðum bókum af öllum stærðum og gerðum. Í mínum huga er ljóst að hér geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Bókaútgáfa stendur að ýmsu leyti á tímamótum og má sjá merki þess hér, því á árinu kemur út fjöldi raf og hljóðbóka af ýmsu tagi. Eftir sem áður eru þó mikill meirihluti útgefinna bóka prentaður, og verður eflaust svo um fyrirsjáanlega framtíð,þó svo bæði raf og hljóðbækur verði fyrirferðameiri er fram í sækir.Í heildina eru skráðar hátt í 800 bækur, sem koma út á árinu. Það er nokkur fjölgun frá síðasta ári og sérstaklega er ánægjulegt að sjá verulega fjölgun í flokki bóka fyrir ungmenni, en í þeim flokki er aukningin yfir 60% milli ára. Eins er gleðilegt að sjá að enn fjölgar útgefnum barnabókum,sem eru í ár liðlega 200. Barnabókaútgáfa á Íslandi hefur verið með miklumblóma á undanförnum árum og sá markaður farið stækkandi, sem er góðs viti fyrir þann örmarkað sem íslenskir bókaútgefendur starfa á. Í raun má segja að um kraftaverkamarkað sé að ræða, þegar litið er til þess mikla fjölda bókatitla sem gefnir eru út á ári hverju. Og það eigum við ykkur bókaunnendum allt að þakka. Að út komi hátt í 800 nýjar bækur á árinu ber vitni óbilandi trú útgefenda og rithöfunda, enda lítum við á okkur sem bókaþjóð.Það er ekki sjálfgefið að starfrækja jafn öflugan bókamarkað og þessi Bókatíðindi vitna um á jafn litlu málsvæði og því íslenska, og einn hornsteina hans er hið svokallaða jólabókaflóð sem nú er skollið á af fullum þunga. Bókaútgefendur horfa á törnina framundan fullir af bjartsýni. Íslendingar vilja helst bækur í jólagjafir, og ljóst að úrvalið í ár er með glæsilegra móti, þannig að bókafólk á öllum aldri á von á góðum glaðningi. Í ár höldum við áfram að laga útlit Bókatíðindanna til þess að gera þau enn aðgengilegri lesendum. Við vonum að nýja útlitið eigi eftir að falla vel í kramið.
Gleðileg bókajól!
Egill Örn Jóhannsson
Formaður Félags íslenskra bókaútgefenda
Bókatíðindi 2015 sjá meira og fletta hér