Í stuttu máli er rakin saga þeirra er fyrstir bjuggu í þorpinu, fyrstu húsum gerð nokkur skil sem og sögu jarðanna er Hella byggist úr. Að auki er nokkuð fjallað um sögu Rangárvallahrepps en Hella tilheyrði honum allt til ársins 2002. Auk sagnfræðilegrar yfirferðar byggir bókin um margt á frásögnum heimamanna sem ljá henni litbrigði.
Bókina prýða meira en tvöþúsund myndir sem safnað hefur verið úr ýmsum áttum, jafn frá einstaklingum og úr stærri söfnum. Um tvöhunduð myndir koma úr safni þeirra Stolzenwald feðga sem tóku mikið af myndum á Hellu á sinni tíð.
Hér gefur að líta sögu þorps sem mörgum er kært og reynist fjölþættari en margan grunar.
Með bókinni lokast byggðasöguhringurinn, en áður hafa komið út bækur um alla gömlu hreppana sem nú mynda Rangárþing ytra. Segja má að 15. september marki tímamót í sögu staðarins, því þann dag fyrir 93 árum fékk Þorsteinn Björnsson fyrstur verslunarréttindi á staðnum. Sjá meira hér