Hildur Yeoman

Hildur Yeoman er einn af okkar fremstu fatahönnuðum.
Hún hefur starfrækt merki undir eigin nafni í nokkur ár og er þekkt fyrir draumkennd prent, kvenleg snið og ævintýralega framsetningu á verkum sínum.

Sagnaarfurinn er sterkur í íslendingum. Hildur notar fatahönnun til þess að búa til heima og segja sögur. Sögurnar fjalla um jurtir og galdra, sterkar kvenímyndir, gleðina eða hafið.

Heimurinn hefur oft birst ljóslifandi fyrir áhorfendum á sýningum Hildar. Þar leitast hún við að blanda saman ólíkum listformum; tónlist, dansi og hönnun með það að markmiði að skapa skemmtilega kvöldstund.

Hildur Yeoman vinnur oft með tónlistarfólki. Björk Guðmundsdóttir, Katy Perry, Cher, khruangbin, Ellie Goulding, Hildur Guðnadóttir og Taylor Swift eru nokkrar af þeim stjörnum sem hafa skartað flíkum frá Hildi.

RELATED LOCAL SERVICES