Hringur Jóhannesson

Hringur Jóhannesson (21. desember 1932 – 17. júlí 1996) var íslenskur myndlistamaður. Hann þótti vera einn helsti fulltrúi ljóðræns nýraunsæis í íslenskri myndlist á 7. og 8. áratugnum.

Hringur fæddist að Haga í Aðaldal. Hann útskrifaðist úr Handíða- og myndlistarskóla Íslands árið 1952 og hélt sína fyrstu einkasýningu 1962. Alls urðu einkasýningar hans tæpar fjörtíu og samsýningar um sjötíu, bæði hér á landi og erlendis. Hann var kennari við Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1959-1962, Myndlistaskólann í Reykjavík frá 1962 og í stjórn skólans frá 1965. Hringur myndskreytti fjöldann allan af blöðum, tímaritum og einnig margar byggingar.

 

SIÐASTI DROPINN
Hringur Jóhannesson listmálari hefur / teiknað forsiðumynd Þjóðviljans i dag og kallar hana „Siðasta dropann“. Segist hann gera ráð fyrir, að það standist nokkuð á, að við jarðarbúar verðum hálfbúin að drepa okkur úr mengun um leið og uppurin verða hráefni jarðar og orka.
Hringur er kunnur myndlistarmaður, sem tekið hefur þátt i ótal samsýningum hér heima og erlendis og haldið uppundir 10 einkasýningar, þá siðustu i fyrra í Bogasalnum. Hringur hefur beitt sér nokkuð jafnt að málverkinu og teikningunni, og njóta málverk hans þess að þar er æfður teiknari á ferð. Sjá myndina í þjóviljanum 03.11.1974  hér

„Mála milli 40 og 50 myndir á hverju sumri,,

segir Hringur Jóhannesson,listmálari í sumarspialli
Það eru um tiu ár siðan þessi vinnustofa min var byggð hér og ég hef komið hingð á hverju sumri siðastliðin sjö eða átta ár“, sagði Hringur Jóhannesson listmálari er Visismenn kíktu inn á vinnustofu hans að Haga i Aðaldal núna fyrir skömmu.
Hringur er fæddur og uppalinn i Haga og það undrar þvi engan að hann kunni vel við sig í sveitinni. Bróðir hans býr búi sinu á Haga og hjálpust þeir að þvi að byggja vinnustofu fyrir málarann. sjá meira hér

Sjá fleiri greinar um myndlistamenn sjá hér

101 Reykjavik


1932- 1996


CATEGORIES




iframe code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Håkan Groop í Litla Gallerý

      Håkan Groop í Litla Gallerý

      Håkan Groop í Litla Gallerý Dagana 5. - 7. ágúst n.k. verður sænski listamaðurinn Håkan Groop með sýningu í Litla Galle...

      Halldór og Halldór

      Halldór og Halldór

      Halldór Baldursson mætir Halldóri Péturssyni. Teiknismiðja fyrir börn og fjölskyldur 7. mars kl. 14 Nafnarnir Hall...

      Jóhannes Jóhannesson 1921-1998

      Jóhannes Jóhannesson 1921-1998

      Jóhannes Jóhannesson (1921-1998) var einn af stofnendum Septem-hópsins og þróaðist list hans frá hlutbundnum verkum ...

      Íslensk hollusta (Icelandic Wholesomeness)

      Íslensk hollusta (Icelandic Wholesomeness)

      Biologist Eyjólfur Friðgeirsson knows nature pretty well. He is passionate about the harvesting of nature, which he sees...