Þjóðminjasafnið – Ef garðálfar gætu talað

Þjóðminjasafnið Suðurgötu – Ef garðálfar gætu talað
16. september 2023 – 14. janúar 2024

Hjartanlega velkomin á opnun ljósmyndasýningarinnar Ef garðálfar gætu talað á laugardag kl. 14:00. Á sýningunni verða myndir eftir Sigríði Marrow og Þórdísi Erlu Ágústsdóttur sem þær tóku af samfélaginu í hjólhýsabyggðinni við Laugarvatn.

Í kjarrinu við rætur Laugarvatnsfjalls var byggð sem teljast verður einstök á landsvísu. Hjólhýsi, gerð til að þjóta um vegi og staldra stutt við urðu hjól-laus, staðbundin, hluti af umhverfinu. Þau stóðu þétt saman og hýstu fólk sem hafði þarna sumardvöl og veitti sköpun sinni útrás með öðrum hætti en heimafyrir.

Sem búsetuform var hjólhýsabyggðin visst millistig. Þorp en samt ekki. Sveit en samt ekki. Nema hvort tveggja væri. Náttúran mest fordekruð í blómapottum og svo hin alræmda, stundum misskilda en ávallt ómissandi mannlega náttúra. Nándin við grannana, sem var mun meiri en í hefðbundnum sumarhúsahverfum. Fólk hefur meiri ánægju en ama hvert af öðru.

Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Marrow heimsóttu fyrir nokkrum árum hjólhýsabyggðina á Laugarvatni þar sem þær í þrjú sumur mynduðu mannlífið á staðnum. Sýningin er afrakstur þeirrar ljósmyndaskráningar og sýnir myndir af fólki sem naut samvista, hlúði að sjálfu sér og sinnti umhverfi sínu.

Á sama tíma opnar sýningin Sumardvalarstaðurinn Laugarvatn. Sýndar verða myndir frá Laugarvatni sem eru í eigu Ljósmyndasafns Íslands. Sú sýning verður á Vegg, sjá hér.

Sýningin stendur til 14. janúar 2023.

Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður opnar sýninguna.
Léttar veitingar.
Verið hjartanlega velkomin.

RELATED LOCAL SERVICES