Íris Björk Gunnarsdóttir

Skoðið og hlustið á tónleikanna með því að klikka hér

Þriðjudaginn 2. mars kl. 12 mun Íris Björk Gunnarsdóttir, sópran, syngja fyrir gesti á hádegistónleikum en Þóra Einarsdóttir forfallaðist og getur ekki komið fram eins og áður hafði verið auglýst.

Dagskrá tónleikanna samanstendur af aríum eftir Mozart, Puccini, Verdi og Bizet sem Íris og Antonía hafa titlað Ástarsögur.

Takmarkað sætaframborð er í boði og nauðsynlegt er að bóka sæti í síma 585 5790. Þá verður tónleikunum streymt í beinni útsendingu á netinu, auk þess sem upptakan verður aðgengileg áfram að tónleikunum loknum, bæði hér á heimasíðu Hafnarborgar og á Facebook-síðu safnsins.

Íris Björk Gunnarsdóttir, sópran, hóf söngnám 21 árs gömul við Söngskóla Sigurðar Demetz. Þar var hún nemandi Valgerðar Guðnadóttur og síðan Sigrúnar Hjálmtýsdóttur/Diddúar. Vorið 2017 kláraði hún framhaldspróf og nemur nú söng við Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Þóru Einarsdóttur, Hönnu Dóru Sturludóttur, Kristins Sigmundssonar, Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og Stuart Skelton. Í byrjun árs 2018 hreppti Íris Björk fyrsta sæti í Vox Domini, söngkeppni á vegum Félags íslenskra söngkennara. Hún hlaut einnig titilinn ,,Rödd ársins 2018” og hluti af verðlaunum var að halda tónleika í Kaldalóni í Hörpu. Í október 2018 kom Íris Björk fram í óperunni Trouble in Tahiti eftir Leonard Bernstein á Óperudögu8m. Haustið 2019 hélt Íris Björk til Stokkhólms þar sem hún stundaði nám við Óperuháskólann í eitt ár og naut leiðsagnar Ulriku Tenstam. Þar söng hún meðal annars í barnasýningu og á nýárstónleikum Konunglegu óperunnar í Stokkhólmi. Íris Björk bar nýlega sigur úr býtum í árlegri keppni Ungra einleikara og mun hún því koma fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands á samnefndum tónleikum í Eldborg í maímánuði. Þann 7. mars tekur hún þátt í flutningi Kórs Langholtskirkju á Jóhannesarpassíu Bachs og mun flytja sópranaríurnar. Í júní mun hún útskrifast með bakkalárgráðu frá Listaháskóla Íslands og stefnir erlendis í mastersnám í óperusöng næsta haust.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, þar sem hún hefur fengið marga af fremstu söngvurum landsins til liðs við sig. Hádegistónleikar eru að venju á dagskrá Hafnarborgar fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

RELATED LOCAL SERVICES

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0