Sýning Óskars Theódórssonar „Konur“ opnar í Gallerí Fold laugardaginn 18. október kl. 13. Sýningin er hluti af listahátíðinni List án landamæra og er Óskar heiðurslistamaður hátíðarinnar árið 2025.
Myndlistarmaðurinn Óskar Theódórsson býr og starfar í Reykjavík. Hann hefur stundað málaralistina í rúm 40 ár, haldið meira en 30 sýningar og er enn að mennta sig í myndlistinni. Gömlu meistararnir, Vincent Van Gogh, Paul Gauguin og Sigurður Eyþórsson eru hans helstu fyrirmyndir en konur og rómantík eru hans helsti innblástur.
Sýningin ber nafn með rentu, því megin viðfang Óskars í listinni hafa verið konur. Myndir hans af konum má telja í þúsundavís. Litirnir í myndunum tákna tilbrigðin í lífinu, lýsa oft áhrifamiklum þáttum og innri og ytri fegurð og sýna vel karakter kvennanna.
Óskar elskar að ferðast og eru Ítalía og Frakkland í miklu uppáhaldi hjá honum. Þar heilla listasöfnin hann helst, sem og plötubúðir, en Óskar hlustar afar mikið á tónlist.
Myndirnar eru á sýningunni eru unnar með olíupastellitum. Óskar hefur einnig unnið með vatnslit og hefur nýlega byrjað að gera einstakar myndir með akrýltússpenna.
AÐGENGI Í GALLERÍ FOLD: Ágætt – aðalinngangur er aðgengilegur en rampur að salerni á annarri hæð er brattur.
Hátíðin er styrkt af menningar- nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, ÖBÍ réttindasamtökum og Hinu húsinu.





