VALTÝR PÉTURSSON

VALTÝR PÉTURSSON

Sýningatími  frá: 24.9.2016 – 12.2.2017, Listasafn Íslands

Valtýr Pétursson (1919−1988) var brautryðjandi abstraktlistar hér á landi, afkastamikill listmálari, mikilvirkur gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi listamanna. Sýningunni sem opnar í Listasafni Íslands í september 2016 er ætlað að gefa yfirlit yfir fjölbreyttan listferil Valtýs.

valtyr040_1Síðasta yfirlitssýning á verkum Valtýs Péturssonar var haldin í Listasafni Íslands árið 1986 og er því löngu tímabært að kynna þennan fjölhæfa myndlistarmann fyrir nýjum kynslóðum og veita þeim sem eldri eru tækifæri til að endurnýja kynnin, en margt í verkum Valtýs kallast á við samtíma okkar og gefur tilefni til að skoða þau í nýju ljósi.

Sýningin í Listasafni Íslands verður í tveimur sölum safnsins og henni mun fylgja vönduð bók með fræðilegum greinum um listferil Valtýs og störf hans sem listgagnrýnanda, auk ítarlegs æviferils og ljósmynda af listaverkum.

Sýningin, sem og bókin um Valtý og verk hans, er unnin í samvinnu við Listaverkasafn Valtýs Péturssonar sem var stofnað að honum látnum og varðveitir fjölda málverka og pappírsverka auk bréfa, blaðagreina, ljósmynda og annarra heimilda sem tengjast Valtý Péturssyni og veita ómetanlega innsýn í ævi hans og störf.

Sjá fleiri greinar um myndlistamenn sjá hér

iframe code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Bragi Ásgeirsson 1931- 2016

      Bragi Ásgeirsson 1931- 2016

      Bragi Ásgeirsson (fæddur 28.maí 1931, dáinn 25. mars 2016) var grafíklistamaður, listmálari og myndlistakennari. Þar að ...

      Halldór Pétursson (1916-1977)

      Halldór Pétursson (1916-1977)

      Sýningatími: 12.9.2020 - 17.1.2021, Myndasalur - Þjóðminjasafnið Suðurgötu Einn helsti teiknari á Íslandi á seinn...

      Ásgrímur Jónsson

      Ásgrímur Jónsson

      Ásgrímur Jónsson (1876-1958) er einn brautryðjenda íslenskrar myndlistar og varð fyrstur íslenskra málara til að gera my...

      Yoko Ono 90 ára

      Yoko Ono 90 ára

      Yoko Ono 90 ára Friðarsúlan tendruð á afmælisdaginn 18. febrúar Yoko Ono fagnar 90 ára...