Sjafnarblóm

 Sjafnarblóm sem er falleg blóma-og gjafavöruverslun í hjarta Selfossbæjar. Hún er staðsett að Austurvegi 21, í gömlu 3ja hæða húsi á móti Landsbankanum.

Ásamt því að vera ávallt með úrval af ferskum blómum er Sjafnarblóm með fallega gjafavöru. Þau bjóða upp á skreytingar við öll tækifæri, s.s. skírnir, fermingar, afmæli, útskriftir, brúðkaup, jarðarfarir o.fl. Fallegir blómvendir og skreytingar eru ávallt til á lager.

Sjafnarblóm bjóða einnig upp á leigu á skreytingum við öll tækifæri og taka einnig að sér að skreyta ef óskað er.

 

 

RELATED LOCAL SERVICES