Skuggafall – Leiðin til ljóssins

Harpa Árnadóttir opnar einkasýninguna Skuggafall – Leiðin til ljóssins

n Skuggafall – Leiðin til ljóssins með verkum eftir Hörpu Árnadóttur.

Verk Hörpu Árnadóttur fela í sér tilraunakennda rannsókn á yfirborði og gegnsæi en grunnur margra verka hennar er hugmyndin um að líta megi á málverk sem sjónræna ljóðlist. Sýningin samanstendur af verkum af fossum, en Harpa hóf að mála fossa þegar hún var í málaradeild MHÍ árið 1990 og hefur það myndmál fylgt henni allar götur síðan. Sjálf segir hún; „Að horfa á foss er eins og að horfa á eilífðina sjálfa. Þúsund ár á þúsundir ára. Þetta eru sjávarföllin í sálinni. Á þessum ferðalögum ferðast þú um innra landslag. Ég teikna ljósfossa því það er unun að horfa á þá myndast hægt og hægt úr pappírnum. Teikning er eins og andardráttur“.

Mörg verkanna á sýningunni eru samsett úr lögum af vatnsleysanlegum lit og lími sem um síðir koma sprungur í. Verkin minna á landslag og aragrúa litbrigða. Sprunguverkin taka marga mánuði jafnvel ár að verða til.

Harpa Árnadóttir (1965) er fædd á Bíldudal en ólst upp í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Harpa sneri sér að myndlist eftir að hafa lokið BA gráðu í sögu og bókmenntum við Háskóla Íslands. Hún nam við Myndlista- og Handíðaskólann og lagði síðan stund á framhaldsnám við Konsthögskolan Valand í Gautaborg. Verk Hörpu hafa verið keypt og sýnd af söfnum víða í Evrópu og þau birtust á fyrsta tvíæringnum í Gautaborg, á Momentum, sjötta norræna tvíæringnum í samtímalist í Moss í Noregi. Árið 1995 vann hún virtu teiknikeppnina Unga tecknare sem National Museum í Stokkhólmi efndi til fyrir unga myndlistarmenn. Þær teikningar eru nú í eigu Moderna Museet í Stokkhólmi. Vatnslitaverk hennar hafa unnið til Col Art vatnslitaverðlaunanna hjá Nordiska Akvarellsalskapet. Málverk hennar hafa verið tilnefnd til forvals í Carnegie Art Award. Nýleg einkasýning Hörpu er Surface of memory í í Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn, 2022-23. Harpa býr og starfar í Reykjavík.

 

RELATED LOCAL SERVICES