Söguslóðir í Dölum eftir Árna Björnsson

Út er komin bókin Söguslóðir í Dölum eftir menningarsagnfræðinginn Árna Björnsson.

Það eru fá héruð jafn rík af sögum og Dalir. Auður djúpúðga nam héraðið og í Hvammi, landnámsbæ Auðar, hófst veldi Sturlunga. Svæðið er líka sögusvið Laxdælu um þau Kjartan, Bolla og Guðrúnu og sjálf Hallgerður langbrók sleit þar barnsskónum.

Þá eru Dalirnir líka sögusvið merkilegra tíðinda á síðari öldum og þar bjuggu margir er sett hafa sitt mark á sögu landsins.

Þetta er bók fyrir öll sem hafa gaman af sögulegum fróðleik, bæði heimamenn og ferðalanga en ekki síður fyrir þau sem þyrstir í þjóðlegan fróðleik og sögur úr íslensku samfélagi í bland við fróðleik um breiðfirska náttúru.

Það má með sanni segja að þarna sé Árni á heimavelli enda um heimahaga hans að ræða. Ritið hefur tekið sinn tíma í skrifum, eða um sex áratugi, en auk bóklegra heimilda naut höfundur fróðleiks úr samtölum við sveitunga.

Ferðafélag Íslands gefur út bókina og fæst hún á skrifstofu félagsins og á heimasíðu.

Skoða bók í vefverslun

Helstu rit Árna Björnssonar:

  • Jól á Íslandi 1963
  • Saga daganna (fyrri gerð) 1977
  • Icelandic Feasts and Holidays 1980
  • Merkisdagar á mannsævinni (fyrri gerð) 1981
  • Í jólaskapi. Myndir eftir Hring Jóhannesson 1983
  • Gamlar þjóðlífsmyndir (ásamt Halldóri J. Jónssyni) 1984
  • Þorrablót á Íslandi 1986
  • Íslandsmyndir Mayers (ásamt Ásgeiri S. Björnssyni) 1986
  • Hræranlegar hátíðir 1987
  • Eyjar í Snæfellsnes- og Dalasýslu. (Árbók Ferðafélags Íslands 1989)
  • Íslenskt vættatal 1990
  • Saga daganna (doktorsrit) 1993
  • High Days and Holidays in Iceland 1995
  • Merkisdagar á mannsævinni (lengri gerð) 1996
  • Dalaheiði. (Árbók Ferðafélags Íslands 1997)
  • Wagner og Völsungar 2000
  • Saga jólanna
  • Í hálfkæringi og alvöru. Þættir um fræði, skáldlist, menningarsögu, heimsmálin og einkennilega menn í 85 ár (Afmælisrit 2017)
  • Um vésögn Sóleyjarkvæðis. (Í bókinni Sóley sólufegri í ritstjórn Silju Aðalsteinsdóttur 2017)
  • Söguslóðir í Dölum (2020)

RELATED LOCAL SERVICES