Sýning myndarinnar Keep Frozen eftir Huldu Rós Guðnadóttur

Sýning myndarinnar Keep Frozen
eftir Huldu Rós Guðnadóttur
Fimmtudag 18. mars kl.  20.00 í Hafnarhúsi

Í tengslum við sýninguna WERK – Labor Move verður sýning á heimildarmyndinni Keep Frozen eftir Huldu Rós Guðnadóttur í fjölnotasal Hafnarhúss.

Athugið að skráning er nauðsynleg HÉR.

Keep Frozen er heimildarmynd um hóp verkamanna sem vinnur við að afferma frystitogara. Þrátt fyrir að íslensk menning eigi fjölmargar sögur, ljóð og söngva af sjómönnum hefur lítið verið ort eða fjallað um erfiðisvinnu bryggjuverkamanna. Hér er á ferðinni saga um þrautseigju mannsins og hvernig sigrast má á verkefnum sem virðast óyfirstíganleg í byrjun.

Myndin hefur verið tilnefnd til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Varsjá, á hátíðinni Vision de Réel í Sviss, á kvikmyndahátíðinni í Lübeck og á Nordisk Panorama. Á Íslandi var myndin tilnefnd til Menningarverðlauna DV og Eddunnar og vann áhorfendaverðlaun á Skjaldborg. Í Þýskalandi var hún valin til sýninga í flokki alþjóðlegra heimildarmynda á elstu og virtustu heimildarmyndahátíð
landsins í Leipzig áður en henni var dreift í listræn kvikmyndahús í Þýskalandi.

iframe code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Þóra Einarsdóttir -tónleikar í Hafnarborg –

      Þóra Einarsdóttir -tónleikar í Hafnarborg –

      Þriðjudaginn 6. desember kl. 12 mun sópransöngkonan Þóra Einarsdóttir koma fram á síðustu hádegistónleikum ársins í Hafn...

      Cultural Center – Langabúð

      Cultural Center – Langabúð

      Langabúð cafe is located in the oldest building in Djupivogur, dating back to 1790. The cafe offers a wide variety of ho...

      Listasafn ASÍ – Fyrsta alþýðulistasafn Evrópu

      Listasafn ASÍ – Fyrsta alþýðulistasafn Evrópu

      Listasafn ASÍ Fyrsta alþýðulistasafn Evrópu Arnór Hannibalsson forstöðumaður Listasafn ASÍ í viðtali í 1. maí 1962 En...

      Bergur Thorberg

      Bergur Thorberg

      Bergur Thorberg myndlistamaður er fæddur 1951 og uppalin í Skagastönd og stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og sa...