Vetrarhátíð í Kópavogi 4.-7. febrúar

Ókeypis á tónleika og sviðsviðburði

Boðið verður upp á þrenna tónleika á föstudagskvöldinu 5. Febrúar. Elísabet Waage hörpuleikari og Laufey Sigurðardóttir fiðluleikaribjóða upp á íhugula vetrarkvöldstónleika í Safnaðarheimili Kópavogskirkju. Í Salnum kl. 19:30 flytja Ásgeir Ásgeirsson og þjóðlagasveit hans íslensk þjóðlög í seiðandi útsetningum þar sem m.a. Sigríður Thorlacius syngur.  Á síðkvöldstónleikum í Hjallakirkju mun tilfinningaþrungin barokktónlist hljóma í flutningi Þórunnar Völu Valdimarsdóttur, Hildigunnar Einarsdóttur, Gróu Margrétar Valdimarsdóttur, Júlíu Mogensen og Láru Bryndísar Eggertsdóttur.

Í gamla Hressingarhælinu í Kópavogi verður sett upp verkið Mosi og ég: Ástarsaga eftir Völu Höskuldsdóttur og mosa sem er verk fyrir einn áhorfanda í einu, dagana 6.-7. febrúar. Verkinu hefur verið lýst sem einstöku ferðalagi innávið þar sem að skynfærin fá að ráða för. Sýningar eru á klukkutíma fresti frá 11 – 20 báða dagana.

Í húsnæði Leikfélags Kópavogs laugardaginn 6. febrúar verður frumsýnt dansverkið Íslenski draumurinn eftir Mörtu Hlín Þorsteinsdóttur í samstarfi við FWD Youth Company við tónlist eftir Odd Kristjánsson (Sgandal).

Í fordyri Salarins í Kópavogi verður dans- og vídeóverkinu SKINN eftir Lilju Rúriksdóttur varpað á skjá á meðan Vetrarhátíð stendur yfir. SKINN er unnið í samstarfi við dansara FWD Youth Company og tónlistarmanninn Örn Ými Arason og er 20 mínútur í sýningu.

Myndlist og leiðsagnir

Hönnunarkollektívið ÞYKJÓ og Sóley Stefánsdóttir tónlistarkona kitla ímyndunaraflið með innsetningunni Skríðum inn í skel á jarðhæð Gerðarsafns. Á efri hæð standa yfir sýningar Magnúsar Helgasonar og Ólafar Helgu Helgadóttur í SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR sýningaröðinni og verður meðal annars boðið upp á krakkavæna leiðsögn um sýninguna með Sprengju-Kötu á laugardaginn og leiðsögn sýningastjóranna Brynju Sveinsdóttur og Hallgerðar Hallgrímsdóttur á sunnudaginn.

Eins og vaninn er á Vetrarhátíð verður Kópavogskirkja böðuð litum og ljósum, föstudagskvöldið 5.febrúar og verður gestum og gangandi boðið að koma inn í kirkjuna á sýninguna Alsjáandi: Ósamþykktar skissur að altaristöflu. Þar má sjá sýningu á tillögum Gerðar Helgadóttur að altaristöflu í Kópavogskirkju en sýningastjórar eru Anna Karen Skúladóttir og Hallgerður Hallgrímsdóttir. Í Midpunkt í Hamraborg sýnir Jóhannes Dagsson myndlistarmaður vídeóverkið Ég veit núna / fjórar athuganir.

List á förnum vegi

Á föstudaginn setja ungir vegglistamenn á vegum Molans upp glænýtt útigalleríGallerí Göng, í undirgöngunum við Hamraborg. Flanerí, nýr hljóðgönguhópur, býður upp á  hljóðvapp með áherslu á útilistaverk eftir Gerði Helgadóttur og Teresu Himmer sem verður aðgengilegt frá og með 5. Febrúar á www.flaneri.is. Á útisvæðinu fyrir framan Menningarhúsin mun Náttúrufræðistofa Kópavogs bjóða upp á Lífljómun, fallegan ratleik fyrir alla fjölskylduna þar sem sjónum er beint að lífljómandi lífverum og hinu innra ljósi. Við útivistarsvæði í kringum Lindasafn verður sett upp Ljóðaganga sem byggir á ljóðum sem nemendur Lindaskóla sendu inn í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs 2021.

 

_____________

4.-7. febrúar á opnunartíma Gerðarsafns: Skríðum inn í skel með Þykjó og Sóley Stefánsdóttur
4.-7. febrúar á opnunartíma Lindasafns: Ljóðaganga um Lindahverfi
4.-7. febrúar á opnunartíma Bókasafns Kópavogs: Ljóðatré
Frá og með 5. Febrúar Hljóðganga FLANERÍ: hægt að nálgast á www.flaneri.is
5. febrúar
 kl. 18: Vetrarkvöld. Elísabet Waage og Laufey Sigurðardóttir í Safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1a
5. febrúar kl. 18 og 19: Micro:bit. Tækjaforritun í Bókasafni Kópavogs
5. febrúar frá 18 – 21: Sýndarveruleiki í Beckmannstofu, Bókasafni Kópavogs
5. febrúar frá 18 – 22: Gallerí Göng í gömlu skiptistöðvargöngunum í Hamraborginni
5. febrúar frá 18 – 24: Kópavogskirkja böðuð ljósum
5. febrúar kl. 19:30: Þjóðlagasveit Ásgeirs Ásgeirssonar í Salnum í Kópavogi, Hamraborg 6
5. febrúar kl. 21:00: Barokktónleikar í Hjallakirkju, Álfaheiði 17
5.-7. Febrúar á opnunartíma Kópavogskirkju: ALSJÁANDI í Kópavogskirkju, Hamraborg 2
5.-7. Febrúar á opnunartíma Midpunkt: Ég veit núna/fjórar athuganir í Midpunkt
5.-7. febrúar Lífljómun á Náttúrufræðistofu Kópavogs (hægt að taka þátt alla hátíðina)
5.-7. febrúar
 SKINN í Salnum
6. febrúar kl. 12: Leiðsögn um sýninguna Alsjáandi í Kópavogskirkju með Önnu Karen Skúladóttur, Hallgerði Hallgrímsdóttur og séra Sigurði Arnarsyni, sóknarpresti í Kópavogskirkju.
6. febrúar kl. 13: Fjölskylduleiðsögn með Sprengju-Kötu um sýninguna SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR í Gerðarsafni
6.febrúar kl. 15 og 16:30: Íslenski draumurinn. Dansverk eftir Mörtu Hlín og FWD Youth Company í húsnæði Leikfélags Kópavogs, Funalind 2.
6 & 7. febrúar frá 11 – 20 (á klukkutíma fresti): Mosi og ég: Ástarsaga eftir Völu Höskuldsdóttur og mosa í Gamla Hressingarhælinu, Kársnesi, Kópavogi.
7.febrúar kl. 13: Sýningaleiðsögn um SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR í Gerðarsafni með Brynju Sveinsdóttur og Hallgerði Hallgrímsdóttur.

Opnunartímar:
Gerðarsafn, Hamraborg 4
Föstudagur 5.2: 10 – 21
Laugardagur 6.2.: 10 – 17
Sunnudagur 7.2.: 10 – 17

Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a
Föstudagur 5.2.: 10 – 21
Laugardagur 6.2.: 11 – 17

Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a
Föstudagur 5.2.: 10 – 21
Laugardagur 6.2.: 11- 17

Lindasafn, Núpalind 7
Föstudagur 5.2.: 14 – 17
Laugardagur 6.2.: 11 – 14

Midpunkt við Hamraborg 22
Föstudagur 5.2.: 18 – 21
Laugardagur 6.2.: 14 – 17
Sunnudagur 7.2.: 14 – 17

ALSJÁANDI í Kópavogskirkju, Hamraborg 2
Föstudagur 5.2.: 17 – 21
Laugardagur 6.2.: 12 -16
Sunnudagur 7.2.: 12 – 16

Hljóðgöngu FLANERÍ verður hægt að nálgast á www.flaneri.is

iframe code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      The Icelandic Emigration Center

      The Icelandic Emigration Center

      The Icelandic Emigration Center in Hofsós in North Iceland The Icelandic Emigration Center was founded in 1996 and d...

      Magnús Á. Árnason

      Magnús Á. Árnason

      FJÖLHAGINN Í LISTINNI Magnús Á. Árnason hefur verið nefndur fjölhagi vegna þess að hann fékkst við svo margar listgrein...

      Guðmundur Thoroddsen

      Guðmundur Thoroddsen

      HVERFISGALLERÍ býður þér á opnun sýningar Guðmundar Thoroddsen Hundaholt, Hundahæðir, laugardaginn 6. júní kl. 16.00 ...
      Reykjavik Museum of Photography - Iceland

      Ljósmyndasafn Reykjavíkur

      Ljósmyndasafn Reykjavíkur

      Markmið Ljósmyndasafns Reykjavíkur er að rannsaka, kynna og halda sýningar á mismunandi þáttum ljósmyndunar, svo sem lis...