Bókatíðindi 2011

Bókatíðindi 2011

Kæru bókaunnendur, íslenskar bókmenntir og bókmenning voru í miðdepli stærstu bókakaupstefnu heims í Frankfurt am Main í október síðastliðnum. Fjallað var um íslenska bókamarkaðinn í öllum helstu fjölmiðlum Þýskalands og hinna þýskumælandi landa auk þess sem sérblöð um allan heim sem flytja fréttir af heimi bókaútgáfunnar sögðu frá einkennum hans og eðli. Eitt af því sem jafnan vekur mikla forvitni blaðamanna eru Bókatíðindi Félags íslenskra bókaútgefenda. Okkur finnst sjálfsagt og eðlilegt að allir útgefendur skrái bækur sínar í rit sem dreift er inn á hvert heimili. Ekki aðeins þeir 40 sem eru meðlimir í Félagi íslenskra bókaútgefenda, heldur að auki um 100 aðrir útgefendur. Þetta er hins vegar algerlega einstakt. Það þekkist hvergi á byggðu bóli að öll þjóðin, eða þá heil borg – ef íbúafjöldi Íslendinga er á við fjölda þeirra sem búa í Bielefeld, eins og Þjóðverjar eru gjarnir að segja þegar þeir vilja gera að gamni sínu – fái inn um lúguna heila vöruskrá sem segir frá því sem bókamarkaðurinn býður upp á.

Bókaskrár Félags íslenskra bókaútgefenda hafa komið út frá því á síðasta áratug 19. aldar. Þær urðu árviss atburður þegar kom fram á 20. öld og frá 1983 hafa Bókatíðindi komið út í aðdraganda jóla í þeirri uppsetningu sem enn er við lýði, fyrst sem kálfar í dagblöðum, en frá lokum níunda áratugarins í núverandi broti. Um árabil hafa Bókatíðindi líka verið gefin út rafrænt á netinu. Þessi langa óslitna saga sýnir vel að íslenski bókamarkaðurinn stendur á traustum grunni og að rætur hans liggja djúpt.

Okkur bókaútgefendum er tamt að horfa á fjölda skráninga í Bókatíðindi sem vísbendingu um hvernig markaðnum reiðir af. Segja má að fjöldi skráninga í Bókatíðindi sé væntingavísitala bókamarkaðarins. Fækki skráningum búast útgefendur við minni áhuga á bókum. Fjölgi skráningum er ljóst að full trú er á að góð bókajól séu í vændum.

Væntingavísitala bókaútgefenda stefnir upp á við og bendir til bjartari tíma. Skráningar í Bókatíðindi 2011 eru þær næstflestu í sögunni. Þær eru meira en helmingi fleiri en fyrir áratug síðan. Þegar nóg framboð er af góðum bókum aukast líka líkurnar á því að þjóðin finni eitthvað við sitt hæfi. Það stefnir allt í góð bókajól 2011.

Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda

Skoða Bókatíðindi 2011 hér

RELATED LOCAL SERVICES