Bókatíðindi 2020

Kæri bókaunnandi,
Við lifum á fordæmalausum tímum, er setning sem við höfum oft heyrt á þessu ári og væri væntanlega valin setning ársins, ef slík útnefning væri gerð. Við höfum þurft að horfast í augu við nýjan veruleika sem hvergi var að finna í áætlunum okkar eða framtíðarsýn. Sagan geymir fjölmörg dæmi um ólíka heimsfaraldra en ekki frá okkar tímum eða svo langt sem minni okkar nær. Þá koma bækurnar okkur til bjargar. Margar frásagnir eru varðveittar í bókum um hremmingar forfeðra okkar og krefjandi glímur við fordæmalausar aðstæður eins og eldgos, plágur og farsóttir. Í öðrum bókum getum við svo fundið ýmiskonar skáldskap um framandi aðstæður sem fæst okkar reiknuðu með að gætu orðið að veruleika. Útópískar fantasíur sem skyndilega reynast hættulega nálægt þeim veruleika sem við höfum kynnst á þessu ári. Já, í bókum má finna allskonar svör, jafnvel við spurningum sem okkur hefur aldrei dottið í hug að spyrja um. En bækur veita okkur líka félagsskap, stytta okkur stundir og færa huga okkar nær því sem við efnislega getum ekki nálgast. „Getur þú hugsað þér sóttkví án bóka?“ er því spurning sem flestir hafa svarað neitandi. En þegar veröldinni er skyndilega snúið á hvolf er gott að staldra við allt það sem faraldurinn hefur ekki áhrif á. Eitt af því er svarið við spurningunni sígildu sem oft hefur prýtt forsíðu bókatíðinda, „Getur þú hugsað þér jól án bóka?“. Svarið við henni er alltaf það sama. Því eitt er víst að á óvissutímum er ómetanlegt að geta gengið að því vísu að úrval nýrra bóka er jafn fjölbreytt nú sem áður. Í þessum Bókatíðindum bíða þín ótal sprúðlandi fersk skáldverk eftir nýja, jafnt sem þekkta höfunda,frábært úrval barna- og ungmennabóka ásamt fræði- og handbókum sem varpa ljósi á samtíma okkar, framtíð og fortíð. Að sofna út frá nýrri bók á jólanótt hefur lengi verið ein allra notalegasta jólahefð landsmanna og svo verður einnig í ár.
Gleðileg dæmalaus íslensk bókajól!
Heiðar Ingi Svansson,
formaður Félags íslenskra bókaútgefenda

Bókatíðindi 2020 sjá hér

RELATED LOCAL SERVICES