Freyja Reynisdóttir: Abacus
15.10.2021 –17.10.2021
14:00–18:00 @ Kaktus
Sýningaropnun kl. 20:00, föstudaginn 15.10.2021
Freyja Reynisdóttir notar verk sín til þess að framkvæma gjörningatengdar tilraunir í leit að huglægum sannleikum, þar sem hún telur ferli túlkunar og skynjunar ákjósanlega leið til að eiga í samskiptum um það óyrðanlega en áþreyfanlega í skilningi okkar á sjálfinu og veruleika okkar. Freyja nálgast viðfangsefni sín í gegnum sín eigin skrif. Hún býr til formúlur og uppskriftir, hluti, teikningar, málverk, innsetningar, hljóð og myndbönd, allt eftir því hvaða miðill hentar hverju sinni.
Ég er heilluð af skilgreiningum á sannleika. Ég vil hugsa til þess að við eigum okkur sameiginlegt tungumál í skynjun sem við deilum og upplifum í gegnum veru okkar meðal allra hluta. Sú upplifun þýðist síðan yfir í tungumál orða og hugtaka, huglægt hverjum einstaklingi.
Hvort sem að Sannleikurinn kemur til með að vera út frá jafnvægi, einhverri óræðri tilfinningu, tímabundinni persónulegri fagurfræði, persónulegu narratívi, kaldrifjaðri hentisemi eða frá öðrum óskilgreindum stað, má með leikgleði kanna hinar ýmsu skilgreiningar á sannleikanum.
Ég býð ykkur að taka þátt í tilraun minni með verkinu Abacus.
(IS)
Freyja Reynisdóttir (f. 1989) er íslenskur myndlistarmaður sem stundar nú meistaranám í frjálsri myndlist við Listaháskóla Íslands. Freyja lauk námi frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2014 og og hefur tekið þátt í fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Freyja er ein af stofnendum Kaktus sem er samsteypa listamanna á Akureyri og einn umsjónarmaður samvinnuverkefnisins RÓT.