„Góð uppskera“: Staða Íslands í alþjóðlegri verslun með líkamsleifar fyrr á tímum
Þriðjudaginn 7. september kl. 12 flytur Adam Netzer Zimmer, doktorsnemi í mannabeinafræði og fornleifafræði, erindi í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Fyrirlesturinn verður á ensku. Fyrirlestrinum verður einnig streymt á YouTube.
Krufning er mikilvægur hluti af námi lækna en að nálgast lík til að nota við kennslu er síður en svo auðvelt. Um aldir gripu líffærafræðingar til þess ráðs að ræna grafir, nýta sér minnihlutahópa í samfélagi sínu og beita fyrir sig tengslaneti nýlenduvelda til að verða sér úti um líkamsleifar. Í fyrirlestrinum mun Adam Netzer Zimmer segja frá rannsóknum sínum á beinagrindum sem varðveittar eru í Læknagarði og fjalla um hvernig íslenskir læknar komust yfir lík á mótunarárum íslenska heilbrigðiskerfisins. Að auki mun hann ræða hvernig erlendir fræðimenn notuðu eitt sinn Íslendinga sem líffærafræðilegt rannsóknarefni.
Vegna fjöldatakmarkana er nauðsynlegt að bóka sæti í síma 530 2202 eða í gegnum netfangið [email protected].