Höfundur: Guðjón Friðriksson

Saga samvinnufélaga á Suðurlandi er í raun atvinnu-, samgöngu- og félagsmálasaga landsfjórðungsins í rúm hundrað ár. Rakin er saga kaupfélaga og annarra samvinnufyrirtækja í Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og Vestmannaeyjum.

Þetta er saga samstöðu og sigra, litríkra leiðtoga og stórhuga framkvæmda en einnig saga togstreitu, hatrammrar stjórnmálabaráttu, mistaka og beiskra ósigra.

Höfundur er löngu þjóðkunnur fyrir vönduð og lifandi sagnfræðirit auk rómaðra ævisagna stjórnmálaskörunga og athafnamanna á borð við Hannes Hafstein, Einar Benediktsson og Jónas Jónsson frá Hriflu.

Verkið allt er í fjórum bindum í meðalstóru broti sem seld eru saman í fallegri öskju.

Gerðu vegi vegna smjörs

Guð­jón Frið­riks­son sagn­fræðingur situr ekki auðum höndum. Nýjasta af­rek hans fjallar um sam­vinnu­fé­lög á Suður­landi í máli og myndum, sem Sæ­mundur gefur út í 4 bindum.

Sjá meira hér