HRINGRÁSARJÓL  Circular Christmas

HRINGRÁSARJÓL 
Circular Christmas

27. Nóvember – Salur / Auditorium
kl. 13.00 – 15.00

 

Notað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði Norræna hússins!

Silkiprent með Prent og vinum: Komið með gamlar flíkur, stuttermaboli eða annan textíl, og glæðið nýju lífi með Prent og vinum – sem munu bjóða gestum og gangandi að gera sitt eigið silkiprent. Þátttakendur geta einnig prentað á pappír, t.d. með að koma með gamla pappírspoka og gera jólakort eða jólamerkimiða úr þeim.

Jólaskiptimarkaður: Það sem nýtist þér ekki lengur gæti vel reynst fjársjóður annars – og öfugt! Komdu með bækur, leikföng, spil, smádót í skóinn – eða bara hvað sem þér dettur í hug – og skiptu fyrir eitthvað annað. Tilvalið tækifæri til þess að finna umhverfisvænar jólagjafir sem þú getur sett undir tréð með góðri samvisku.

Við hlökkum til að sjá ykkur og bendum einnig á að Sónó Matseljur verða með sérstakan jólamatseðil og jóladrykki í boði.

RELATED LOCAL SERVICES