THG Arkitektar var stofnað í október 1994 og er verksvið fyrirtækisins almenn hönnun bygginga, áætlanagerð, eftirlit ásamt verkefna- og byggingastjórnun mannvirkja.
Verkefni hafa verið margvísleg, m.a. hönnun skrifstofu- og verslunarhúsnæðis, hótelbygginga, iðnaðarbygginga, fjölbýlishúsa, stofnana fyrir aldraða, flugstöð, íþróttamannvirkja auk deiliskipulaga, endurbygginga eldra húsnæðis og þátttöku í umhverfismati. Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur það verið metnaðarmál að uppfylla óskir viðskiptavina á faglegan og hagkvæman hátt.
![](https://i0.wp.com/icelandictimes.com/cdn-cgi/image/width=768,height=541,/wp-content/uploads/2018/01/thg-arkitektar.jpg?fit=768%2C541&ssl=1)