Bókatíðindi 2013

Bókatíðindi 2013

Kæru bókakaupendur, íslenskur bókamarkaður er einstakur. Á Íslandi gefa fleiri en 100 aðilar út bækur á hverju ári og í ár eru skráðar rúmlega 700 nýjar bækur í Bókatíðindin. Aðeins 1 af hverjum 3 þýdd, þannig að mikill meirihluti útgáfunnar er eftir íslenska höfunda, sem er afar ánægjulegt.

Eitt af því sem gerir íslenskan bókamarkað svo einstakan eru Bókatíðindin sem þú heldur nú á, en hvergi í heiminum eru borin út tíðindi nánast allrar útgáfu ársins inn á hvert heimili. Bókatíðindin eru upphafið að jólahaldinu í hugum margra, og að fá bækur í jólagjöf er ríkur þáttur í jólahaldi flestra Íslendinga enda sú hefð að leggjast til hvílu á aðfangadag með nýja bók nauðsynleg mörgum.

Jólabókaflóðið, sem nú er hafið, er hornsteinn íslenskrar bókaútgáfu og í raun það sem fjölmargir bókaútgefendur, rithöfundar og aðrir, sem útgáfunni tengjast, byggja allt sitt á. Jólabókaflóðið er því að mörgu leyti grundvöllur þess að íslensk bókaútgáfa geti þrifist með þeim hætti sem hún hefur gert áratugum saman. Sú ríka hefð Íslendinga að gefa bækur til jólagjafa er flestum sem að þessu koma nauðsynleg.

Íslensku bókmenntaverðlaunin verða afhent í 25. skiptið á næsta ári og af því tilefni hefur Félag íslenskra bókaútgefenda ákveðið að fjölga verðlaunaflokkum í samtals þrjá og verður nú í fyrsta skipti veitt verðlaun í flokki barna- og unglingabóka. Og þar er úr fjölmörgum bókum að velja, en útgáfa barna- og unglingabóka eykst nú um næstum fimmtung milli ára, sem er mikið ánægjuefni.

Að venja börn við bóklestur skiptir miklu máli. Lestur örvar máltilfinningu, auðveldar tjáningu, eykur málskilning og bætir námsárangur. Hann er fjölvítamínið sem við þurfum öll á að halda.

Framundan eru frábær bókajól. Njótið vel.
Egill Örn Jóhannsson, Formaður Félags íslenskra bókaútgefenda

Skoða Bókatíðindi 2013 hér

RELATED LOCAL SERVICES