Leiðsögn listamanna – Iðavöllur:
Eva Ísleifs og Rebecca Erin Moran Laugardag 12. júní kl. 14.00 í Hafnarhúsi |
Leiðsögn með Evu Ísleifs og Rebeccu Erin Moran sem eiga verk á sýningunni Iðavöllur: Íslensk myndlist á 21. öld. Athugið að skráning er nauðsynleg HÉR. Yfirskrift sýningarinnar er Iðavöllur. Titillinn er fengið að láni úr Völuspá og kemur þar tvisvar við sögu. Iðavöllur er staðurinn þar sem æsir hittast við frumsköpun heimsins og koma síðan aftur saman á eftir Ragnarök til þess að skapa nýja heimsmynd. Hafnarhúsið tekur á sig hlutverk slíks Iðavallar sem vettvangur skapandi listamanna í hringiðu umbreytinga við upphaf nýrrar þúsaldar. Eva Ísleifs (f. 1982) hefur aðsetur bæði í Reykjavík og í Aþenu. Hún útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og lauk MA prófi í skúlptúr frá Listaháskóla Edinborgar árið 2010. Árið 2016 stofnaði hún, í samvinnu við N. Niederhauser og Z. Hatziyannaki, A – DASH, sem er listamannarekið sýningar- og stúdíórými í Aþenu. Þar hefur hún stýrt verkefnum og alþjóðlegir listamenn dvalið. Eva er auk þess meðstofnandi og skipuleggjandi Staðir/Places á Vestfjörðum. Rebecca Erin Moran (Hún/hán, f. 1976), er kynsegin amerísk-íslenskur listamaður sem býr á milli Reykjavíkur og Berlínar. Frá útskrift hefur Rebecca haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda sýninga á Íslandi, Evrópu og í Norður Ameríku. Hán fagnar núningum í tilviljunarkenndum millirýmum og hugmyndinni um hverfugleika og endurtekningu. Til þess notar hán oft innsetningar og efni sem aðlagast yfir tíma, þróast og eru á stöðugri hreyfingu. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur. |