Hafnarborg – Listamanns- og sýningarstjóraspjall

Hafnarborg
Landslag fyrir útvalda – listamanns- og sýningarstjóraspjall
Sunnudaginn 1. október kl. 14

Sunnudaginn 1. október kl. 14 bjóðum við ykkur velkomin á spjall um haustsýningu Hafnarborgar, Landslag fyrir útvalda, með Fritz Hendrik IV, sem er einn þeirra listamanna sem eiga verk á sýningunni, og Evu Lín Vilhjálmsdóttur, sem stýrir sýningunni ásamt Oddu Júlíu Snorradóttur.

Á sýningunni er lagt upp með að kanna myndmál og möguleika veruleikaflótta. Þá búum við í heimi öfgafullra yfirvofandi breytinga, þar sem samfélagið kallar í síauknum mæli eftir því að einstaklingar beri ábyrgð á hnattrænum vandamálum. Að leita á vit flóttans er því orðinn stór hluti hversdagsleikans, enda þótt veruleikaflóttinn hafi fylgt okkur um aldanna rás og birtingarmyndir hans endurspegli jafnan það ástand sem ætlunin er að flýja.

Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Arna Beth, Fritz Hendrik IV, Margrét Helga Sesseljudóttir, Sól Hansdóttir, Vikram Pradhan, Bíbí Söring og Þrándur Jóhannsson, auk þess sem sýnd eru verk eftir Eirík Smith, Patrick Huse og Sigrid Valtingojer úr safneign Hafnarborgar og Listasafns ASÍ.

Fritz Hendrik IV (f. 1993) er íslenskur myndlistarmaður sem býr og starfar í Reykjavík. Í myndlist sinni fjallar hann meðal annars um þá meðvituðu og ómeðvituðu sviðsetningu sem einkennir lífið, listir og menningu sem og samband hefðar, skynjunar og þekkingar. Hann hefur haldið einkasýningar í Kling og Bang og Ásmundarsal, auk þess að hafa tekið þátt í samsýningum í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands, Hafnarborg og Moscow Biennale for Young Art í Rússlandi. Verk Fritz eru í eigu fjölda einkaaðila og safna, svo sem Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur.

Eva Lín Vilhjálmsdóttir (f. 1995) útskrifaðist með BA í heimspeki frá Háskóla Íslands og MA í heimspeki með áherslu á listheimspeki frá King’s College London. Um þessar mundir starfar hún sem samskiptafulltrúi hjá i8 gallerí ásamt því að vinna sjálfstæð verkefni. Eva Lín hefur skrifað um list og tekið viðtöl við listamenn fyrir ýmis tímarit og heldur áfram að þróa eigin listheimspekiiðkun í gegnum verkefni sín. Með því að nálgast listheiminn frá heimspekilegu sjónarhorni leggur hún áherslu á gagnrýna nálgun á samtímalist og skoðar félagslega umgjörð hennar innar sjónmenningar.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

RELATED LOCAL SERVICES