Carl Boutard og Ásmundur Sveinsson: Gróður jarðar

 

Sýningaropnun – Carl Boutard og Ásmundur Sveinsson: Gróður jarðar
Fimmtudag 14. október kl. 20.00 í Ásmundarsafni

Sýning á verkum Carls Boutard og Ásmundar Sveinssonar Gróður jarðar verður opnuð fimmtudaginn 14. október kl. 20.00 í Ásmundarsafni við Sigtún. Hjálmar Sveinsson, formaður stjórnar Ásmundarsafns, opnar sýninguna.

Í náttúrunni er að finna ótal dæmi um undraverða hönnun, þar sem form ráðast af samspili reglu, endurtekninga og frávika. Listamaðurinn Carl Boutard beinir sjónum að þessum þáttum á sýningu sinni og Ámundar Sveinssonar. Höggmyndalist Carls hefur þróast út frá ástríðu listamannsins fyrir umhverfinu, bæði manngerðu og náttúrulegu. Verk hans eru gjarnan unnin í samhengi við almannarými og þau endurspegla tengsl á milli manns, náttúru og menningar.

Carl lýsir sér sem „hefðbundnum myndhöggvara“ með tilvísun í áherslu sína á efni og form og þá virkni verkanna að þau taka breytingum eftir því frá hvaða sjónarhorni horft er á þau. Verkin kunna að virðast óhlutbundin en þau eru iðulega dregin af náttúrulegum formum sem finna má agnarsmá í jurtaríkinu eða gríðarstór í himingeiminum.

Fjölmargt í listsköpun Carls Boutard á sér samsvörun í ævistarfi Ásmundar Sveinssonar. Það er spennandi að sjá verk þessara myndhöggvara ólíkra tíma kallast á. Gestir öðlast nýja sýn á arfleifð hins gamalkunna og ástsæla listamanns í gegnum linsu samtímans – í hinu fallega umhverfi sem Ásmundarsafn og garðurinn í kring móta.

Carl speglar nýjar höggmyndir sínar í verkum frá ýmsum tímum á ferli Ásmundar. Hann dregur fram til samtals þau verk sem sýna áhuga Ásmundar á tengslum manns og  náttúru. Oft á tíðum persónugerði Ásmundur náttúruna í mannsmyndum eða hálf-abstrakt fígúrum og eins færði hann ýmis náttúruöfl í óhlutbundin form. Sýningin dregur heiti sitt af tréskúlptúr, Gróðri jarðar frá 1945, þar sem náttúran er í gervi konu en um leið eru formin eins og tré eða jurtir sem teygja sig úr jarðveginum upp til himins.

Ásmundur Sveinson (1893-1982) var frumkvöðull í íslenskri myndlist. Hann nam klassíska höggmyndalist og vann í hefðbundin efni framan af. Viðfangsefni hans voru tengd nærumhverfinu, vinnandi stéttir, náttúran, þjóðsögur og sagnarfurinn. Á sjöunda áratugnum vék hann frá þeim fígúratífu aðferðum sem áður einkenndi listsköpun hans og fór í auknum mæli að nota óhlutbundið myndmál. Viðfangsefni hans urðu óefniskenndari og tengd náttúrufyrirbærum, lögmálum og eðlisfræði. Óhefðbundinn efniviður varð áberandi í verkum hans og stýrði gjarnan útkomu einstakra verka; um leið tók hann upp frjálsari aðferðir með því að vinna beint í efnið. Ásmundur reisti vinnustofu sína og heimili, kúluhúsið, í nokkrum áföngum á árunum 1942-59.

Carl Boutard er fæddur árið 1975 í Kiruna í Svíþjóð og stundaði nám við Malmö Art Academy og Listaháskóla Íslands í Reykjavík. Auk þess hefur hann lært arkitektúr við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi. Verk Boutards hafa verið sýnd í Listasafni Malmö, Lunds Konsthall, Sven-Harrys konstmuseum, Artipelag, Bonniers Konsthall og Centre Culturel Suédois í París. Boutard hlaut ISCP-styrkinn í New York árið 2015 og meðal verka hans í almannarými eru skúlptúrar í Stokkhólmi, Uppsölum, Karlstad, Lundi í Svíþjóð sem og í Heidenheim, Þýskalandi. Hann á verk í söfnunum í Malmö Art Museum, Public Art Agency Sweden og Skissernas Museum – Museum of Artistic Process and Public Art í Lundi. Carl er lektor við myndlistardeild Listaháskóla Íslands.

Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson.

RELATED LOCAL SERVICES