List í ljósi, verk á Safnanótt

Safnanótt í Þjóðminjasafni og Safnahúsinu Hverfisgötu

Safnanótt hefur verið árlegur viðburður á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2002. Allir viðburðir hátíðarinnar eru gestum að kostnaðarlausu og geta því allir borgarbúar notið kraftmikils menningarlífs og góðrar samveru yfir alla hátíðina. Þjóðminjasafn Íslands býður uppá skemmtilega dagskrá fyrir alla aldurshópa föstudaginn 2. febrúar. Ókeypis aðgangur og opið frá kl. 18 – 23 í Þjóðminjasafninu og Safnahúsinu við Hverfisgötu.

Safnanótt í Þjóðminjasafni

Siglt eftir stjörnunum

Sævar Helgi Bragason, Siglt eftir stjörnunum
Sævar Helgi Bragason

Sævar Helgi Bragason skoðar stjörnur og segir frá rötun. Krakkar og fullorðnir eru velkomnir og við búum til einfaldan sextant sem gerir okkur kleift að mæla breiddargráðu Íslands. Gestir læra líka áttirnar út frá stjörnunum. Ef veður leyfir verður kíkt á stjörnuhimininn.

 19.00 – 20.00

Leiðsögn á íslensku um grunnsýninguna Þjóð verður til

Á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er leitast við að draga upp skýra og heillega mynd af menningarsögu Íslendinga. Saga þjóðarinnar er rakin í tímaröð frá landnámi til dagsins í dag.

20.00 – 20.45

Bergmál í undirgöngum 

Í tilefni ljósmyndasýningarinnar Langa blokkin í Efra Breiðholtinu stýrir Lóa Hjálmtýsdóttir rithöfundur og myndlistarkona upplestri í Myndasal. Rithöfundarnir Sjón, Eva Rún Snorradóttir, Halla Birgisdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir lesa upp úr eigin verkum.

Safnahúsið við Hverfisgötu

19:00 – 23:00

List í ljósi – Ekkó

Seyðfirska listahátíðin List í Ljósi mun í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkur varpa verkinu Ekkó (Echo) á Safnahúsið. Verkið er eftir Nýsjálensku listamennina Samuel Miro og Delainy Kennedy sem mynda listahópinn Nocturnal (nocturnal.nz).

19.00 – 19.20  og 19:30 – 19.50

Dansferðalag um tíma og rúm Dansferðalag um tíma og rúm

Nemendur á framhaldsbraut Klassíska listdansskólans ferðast dansandi um rými Safnahússins með innblástur dregin úr verkum Pinu Bausch sem þau hafa leikið með á ólíkan hátt og útfært fyrir rými Safnahússins. Áhorfandinn sér birtast kunnuleg brot úr þekktum verkum Pinu svo sem verkinu Rite of Spring.

20:00 – 21.00

Spekingar spjalla

Sérfræðingar frá söfnunum sem eiga verk á sýningunni Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim í Safnahúsinu eru við á sýningunni á milli kl. 20 og 21 og spjalla við gesti um valda sýningarhluta.

 21.00 – 21.30

Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson koma fram

Söngkonan góðkunna, Sigríður Thorlacius, og hinn mæti söngvari, Sigurður Guðmundsson, koma fram í gamla lestrarsalnum í Safnahúsinu og flytja nokkur hugljúf lög fyrir gesti.

RELATED LOCAL SERVICES