B. Ingrid Olson

20. janúar – 20. desember 2023

B. Ingrid Olson

Cast of Mind

i8 Grandi, Marshallhúsið
Opnun: Föstudagur 20. janúar klukkan 17-19

Við bjóðum ykkur velkomin í i8 Granda í Marshallhúsinu á opnun sýningar B. Ingrid OlsonCast of Mind. Sýningin mun opna 20. janúar 2023 og stendur til 20. desember 2023. i8 Grandi stendur að mun lengri sýningum en vaninn er hjá söfnum og galleríum. Heilsárssýningarnar eru helgaðar hugmyndum um tíma og rúm og uppstillingin mun þróast sem á líður á sýninguna. Hið langa skeið sem heilt ár býður upp á leyfir listamönnum að íhuga hvernig tíminn mótar verk þeirra og hvernig flæðið hvetur áhorfendur til að heimsækja aftur síbreytilegar innsetningar.

Heitið „Cast of Mind“ lýsir hvernig skynjun manneskju gæti stafað af ákveðinni tilhneigingu, rótgrónum skoðunum eða tímabundnu hugarástandi. Í stuttu máli endurspeglar heitið hugmyndina um huglæga skynjun en orð þess gætu einnig ljóðrænt gefið í skyn að hugsun sé varanlega skjalfest. Að steypa í mót einhverju jafn breytilegu og hugsun er góð linsa til að virða fyrir sér sýningu sem býður upp á breytingar í sjálfri sér. Hvernig er hægt að skrá ummerki vitsmuna, ákvarðanatöku, minnis og eðlisávísunar?

Að mati Olson eru ummerkin breytileg. Í Cast of Mind munu ný verk og þau sem fyrir eru sameinast með ýmsum hætti á árinu, þar sem aðferðir við sjón og sýnileika og eftirfarandi eru rannsakaðar: tvöföldun og speglun, kynlaus og kynjuð form, gagnverkun ljósmyndar og skúlptúrs og hvernig líkami listamannsins og hvers og eins áhorfanda tengist hinu smíðaða umhverfi. Verkunum verður raðað upp á nýtt og breytt endurtekið, til að ítreka tengingar og stöður á stað þar sem vinnu- og sýningarrými falla saman.

Olson hefur valið að vinna með salina tvo í i8 Granda sem ólík en tengd rými, líkt og fortjald og svið, eða eins og umskiptin frá munni til maga. Galleríið við innganginn verður í líki formála, fyrstu kynni sem stilla væntingar og skynjun. Stór strúktúr sem líkist vinnuborði, titlaður Total Work (Cast of Mind), 2023, mun fylla út meirihluta gólfflatarins og skapa mjóan gangveg í kring. Þetta sambland borðs og skúlptúrs mun skipa varanlegan sess á meðan á sýningunni stendur, þar sem blasa við breytileg uppsetning listaverka auk bóka sem listamaðurinn hefur valið.

Seinna rýmið, með hinu háa 7 metra lofti, verður aðalsvið fyrir athafnir. Íhlutun Olson mun ýmist draga fram eða draga úr dramatísku umfangi arkitektúrsins hvað vegghönnun, lýsingu og tímabundna strúktúra varðar sem hafa áhrif á upplifun rýmisins. Fyrsta umferðin, við opnun sýningarinnar, mun innihalda innsetningu með breyttum antík ljósastæðum, What I would be if I wasn’t what I am, I, I, e.d, sem verða hengd upp langt frá loftinu til að skapa annað falskt loft, sem skiptir hinu háa lofti gallerísins í tvennt. Með nálægu ljósi frá hinum lágu ljósastæðum, munu verkin á veggjum og gólfi koma og fara: með því að víxla, skjóta inn og fjara út.

Eins og orð sem yfirgefur eina setningu og gengur inn í aðra—með örlítið breyttri merkingu og með nýjum tón í nýju samhengi—munu frumatriði, efni og tákn vera toguð og teygð, á meðan þau smjúga inn og út úr aðstæðum sínum. Heild verkanna mun breytast, ekki öll í einu, en með hreyfingu hvers verks á eigin hraða. Hinar mörgu umraðanir Cast of Mind munu skapa völundarhús nets hugsana sem sýna starf listamanns sem lifandi hlut, sem ekki á að gera stöðugt.

B. Ingrid Olson (f. 1987) býr og starfar í Chicago. Einkasýningar hennar hafa verið haldnar í Carpenter Center for Visual Arts við Harvard University; Vienna Secession og Albright-Knox Art Gallery. Verk hennar hafa einnig birst í samsýningum í The Renaissance Society við University of Chicago. Olson hefur einnig tekið þátt í hópsýningum í Jeu de Paume; Museum of Contemporary Art Chicago; Institute of Contemporary Art, Los Angeles; Aspen Art Museum og The Museum of Modern Art, New York.

Frekari upplýsingar veitir Dórothea Olesen: [email protected]

 

RELATED LOCAL SERVICES