Saltvatnaskil eftir Hrafnhildi Þórhallsdóttir

Bókin Saltvatnaskil fjallar um konu sem leggst út, nánar tiltekið undir brúna yfir Tjörnina í Reykjavík í kjölfar atburða tengdum skáldskapnum og ástinni. Hún hrekst um knúnin áfram af þrá eftir ljóðtextum og skáldskap sem hún bæði les og skrifar eins og hún eigi lífið að leysa.


Saltvatnaskil er ljóðasaga þar sem skiptast á prósa- og ljóðtextar.Bókin Saltvatnaskil fjallar um konu sem leggst út, nánar tiltekið undir brúna yfir Tjörnina í Reykjavík í kjölfar atburða tengdum skáldskapnum og ástinni. Hún hrekst um knúnin áfram af þrá eftir ljóðtextum og skáldskap sem hún bæði les og skrifar eins og hún eigi lífið að leysa. Saltvatnaskil er ljóðasaga þar sem skiptast á prósa- og ljóðtextar.

 

Texti úr bókinni Saltvatnaskil:

Við tók einhver hlýjasti vetur í manna minnum. Með öðrum orðum: það rigndi. Flesta daga fossaði vatnsflaumurinn eftir götunum og rennbleytti allt sem fyrir varð áður en hann hvarf ofan í göturæsin og þaðan aftur til sjávar. Allt virtist hafa lagst á eitt um að drekkja ísbjörnum heimsins – og mér með, það hvarflaði að mér að smíða örk. Og í takt við leysingarnar í náttúrunni var engu líkara en innra með mér ættu sér stað einhvers konar ljóðaleysingar; ég skrifaði ljóð dag sem nótt og hvar sem ég var stödd; ljóð sem söfnuðust fyrir í buxnavösum og handtöskum og peningabuddum þaðan sem þau ultu gjarnan þegar síst skyldi og höfnuðu á gangstéttarhellum og gólfflísum og lágu þar líkt og óvæntar játningar sem enginn hafði áhuga á að heyra:

Nálægð/Fjarlægð
færa mig fjær þér eða færa mig nær þér
aðeins þetta gefur tímanum merkingu

skrifa þér ástarbréf
fel það í brjóstahaldaranum
fylgist með þér velta sælgætisbréfi milli
fingranna

tíni vörurnar í innkaupakerru
finn að ég er að tærast upp
elda ragú
nær dauða en lífi
tæmi flösku af rauðvíni í sósuna
finn að ég er að svelta í hel

 

RELATED LOCAL SERVICES